Go to content

Samþykktir - Berjamói heimasíða

Félag lóðaeigenda Berjamóa
Skip menu
Berjamói
Skip menu
Skip menu
Samþykktir
fyrir félag í landi Þórisstaða 2 í Grímsnesi

1. gr.
Heiti félags
Félagið heitir, Félag sumarhúsaeigenda Berjamóa.
Varnarþing þess er hjá héraðsdómi Suðurlands

2. gr.
Stofnun félags
Félagið starfar í samræmi við 17. gr. laga nr. 75/2008, um frístundabyggð og leigu lóðar undir frístundahús.  Félagssvæðið er úr landi Þórisstaða 2 Grímsnes og Grafningshreppi LNR.168293.
Félagið er aðili að Landssambandi sumarhúsaeigenda fyrir hönd félagsmanna sinna.

3. gr.
Félagsmenn
Félagsmenn eru allir þeir sem hafa umráð yfir lóð undir frístundahús á svæðinu. Sama gildir um umráðamenn lóða án húss.
Eigendaskipti skal tilkynna stjórn félagsins.

4. gr.
Hlutverk
Hlutverk félagsins er:
viðhald akvega.
viðhald sameiginlegrar girðingar um svæðið.
uppsetningu og rekstur öryggiskerfa.
að setja almennar samskipta- og umgengisreglur innan frístundabyggðarinnar.

5. gr.
Tilgangur
Tilgangur félagsins er að:
gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart stjórnvöldum vegna mála sem snerta lóðarhafa og frístundabyggðina,
vinna að hvers konar sameiginlegum hagsmunum félagsmanna á félagssvæðinu,
stuðla að og fylgjast með góðri umgengi og náttúruvernd á félagssvæðinu,
vinna að auknu öryggi á félagssvæðinu,
vinna að uppgræðslu sameiginlegra svæða.







6. gr.
Skipun stjórnar
Stjórn félagsins skipa 5 menn úr hópi félagsmanna sem kjörnir eru á aðalfundi. Formaður skal kjörinn sérstaklega til tveggja ára. Aðra stjórnarmenn skal kjósa til tveggja ára þannig að helmingur er kjörinn annað árið og annar helmingur hitt árið. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum þannig að einn sé ritari, einn gjaldkeri og aðrir meðstjórnendur. Árlega skal kjósa einn varamann til tveggja ára.
Boða skal varamann til stjórnarfundar þegar aðalmaður boðar forföll eða þegar stjórnarmaður óskar þess.
(Ath. Sé kostur B valinn er nauðsynlegt að setja í samþykktirnar ákvæði til bráðabirgða. Sjá nánar fyrirmynd að slíku ákvæði á eftir 19. gr.)

7. gr.
Aðalfundur
Aðalfund skal halda árlega fyrir 1. júní.  Fer hann með æðsta vald í málefnum félagsins.
Aðalfund skal stjórnin boða bréflega til tilgreindra umráðamanna frístundalóða með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Boða má fund með tölvubréfi á það póstfang sem forráðamaður hefur látið stjórninni í té og telst það fullnægjandi svo fremi að ekki komi boð um það til sendanda að tölvubréfið hafi ekki komist til skila. Í fundarboði skal greina fundartíma, fundarstað og dagskrá. Þá skal geta þeirra mála sem ræða á og samantekt á efni þeirra tillagna sem leggja á fyrir fundinn.
Fundurinn telst lögmætur ef minnst fjórðungur félagsmanna sækir fundinn. Ef tilskilinn fjöldi félagsmanna mætir ekki á löglega boðaðan fund skal hann endurtekinn eftir skriflega boðun, með að lágmarki viku fyrirvara, og telst hann þá lögmætur með þeim fjölda félagsmanna, sem mæta seinna skiptið.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins,
staðfestur ársreikningur félagsins fyrir liðið reikningsár lagður fram til umræðu og samþykktar,
kosning formanns í samræmi við 6. gr.,
kosning annarra stjórnarmanna í samræmi við 6. gr.,
kosning varamanns/manna í samræmi við 6. gr.,
kosning skoðunarmanns/manna ársreikninga og varamanns,
framlagning rekstrar- og framkvæmdaáætlunar fyrir næsta ár,
ákvörðun um árgjald félagsins sem standa skal undir eðlilegu viðhaldi og rekstri skv. 15. gr.,
mál sem tiltekin eru í fundarboði og afgreiðsla þeirra,
önnur mál
Hafi stjórn ekki boðað til aðalfundar 1. júní er þeim félagsmönnum sem vilja halda fund heimilt að boða hann í samræmi við 1. mgr. og kjósa nýja stjórn sem telst réttkjörin í stað fyrri stjórnar.



8. gr.
Atkvæði
Eitt atkvæði fylgir hverri lóð undir frístundahús og fer tilgreindur umráðamaður með atkvæðisréttin. Afl atkvæða ræður úrslitum mála annarra en þeirra sem fjallað er um í 11. gr. og 19. gr.

9. gr.
Skipting kostnaðar og lögveð
Kostnaður skiptist að jöfnu og ræðst af fjölda lóða undir frístundahús á félagssvæðinu. Umráðamanni lóðar undir frístundahús er skylt að greiða sinn hluta kostnaðar sem hlýst af ákvörðun sem löglega hefur verið tekin.
Greiði félagsmaður ekki hlutdeild sína í sameiginlegum kostnaði og í félagssjóð á gjalddaga eignast félagið lögveð í eign hans á félagssvæðinu, þ.m.t. í leigulóðasamningi, til tryggingar kröfunni. Lögveðið nær einnig til vaxta og innheimtukostnaðar af kröfunni ef því er að skipta. Lögveðinu skal fylgja eftir með lögsókn eða því lýst við nauðungasölu innan árs frá stofnun þess. Viðurkenning eigenda utan réttar nægir ekki til að rjúfa fyrningu.

10. gr.
Fundarseta
Rétt til fundarsetu hafa félagsmenn, makar þeirra og sambúðaraðilar. Sambúðaraðili í skilningi samþykkta þessara er einstaklingur sem er í skráðri sambúð með leigutaka eða umráðamanni lóðar undir frístundahús, í frístundabyggð.
Félagsmaður má veita sérhverjum lögráða manni umboð til að mæta á fundi og greiða atkvæði. Skal umboðsmaður leggja fram á fundinum skriflegt og dagsett umboð. Slíkt umboð má hvenær sem er afturkalla.
Þegar tveir eða fleiri eru eigendur eða leigjendur að lóð skulu þeir tilkynna stjórn félagsins hver skuli teljast umráðmaður hennar samkvæmt samþykktum þessum og fer með atkvæðisrétt, fær fundarboð og kröfu um greiðslu gjalda til félagsins.

11. gr.
Sérstakar ákvarðanir
Ef lögð er fram tillaga á fundi félagsins samkvæmt auglýstri dagskrá í fundarboði um að ráðast í framkvæmdir eða stofna til kostnaðar sem leiða til útgjalda sem eru umfram venjulegan rekstrarkostnað félagsins skal sú tillaga talin samþykkt hljóti hún samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst fjórðungur félagsmanna sækir fundinn.

12. gr.
Valdsvið stjórnar
Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin getur boðað til félagsfunda eins oft og þurfa þykir. Til funda skal boða bréflega með tveggja vikna fyrirvara á sama hátt og aðalfund.
Skylt er að boða til félagsfundar ef fjórðungur félagsmanna krefst þess skriflega
Stjórnin getur ekki bundið félagsmenn fjárhagslega.

13. gr.
Gerðarbók
Stjórn félagsins skal halda gerðarbók yfir bæði stjórnarfundi og félagsfundi
Í fundargerðarbók skal skrá yfirlit yfir allt það sem gerðist á félagsfundi og ákvarðanir hans. Fundargerðin skal undirrituð af ritara fundar og fundarstjóra. Fundargerðin er síðan full sönnun þess sem fram hefur farið á fundinum. Sama gildir með fundi stjórnarinnar.
Á fundum félagsins skulu allir félagsaðilar eða umboðsmenn þeirra sem sitja fundinn skrá nafn sitt í fundargerðabók eða fundarsóknarbók og fyrir hvaða lóð eða bústað þeir sitja fundinn.
Fundargerð hvers félagsfundar svo og samþykktan ársreikning og félagaskrá skal senda umráðamanni lóðar innan þriggja vikna frá fundi á tölvupóstfang sem þeir láta stjórn félagsins í té. Aðrir félagsmenn (geta óskað eftir því að) fá gögnin send í pósti.
Stjórninni er heimilt að birta þessar upplýsingar á heimasíðu á netinu sem félagið hefur til umráða í stað þess að senda þær með tölvupósti.

14. gr.
Nefndarskipun
Stjórninni er heimilt að skipa nefndir til sérstakra verkefna ef henni þykir ástæða til.

15. gr.
Gjalddagi
Gjalddagi árgjalds skv. 6. gr. skal vera 1 maí og eindagi 15 dögum síðar. Gjalddagi framkvæmdagjalds sem ákvarðað er skv. 11. gr. skal vera tilgreint við samþykkt þess.

16. gr.
Reikningsárið
Reikningsár félagsins er almanaksárið.

17. gr.
Slit félagsins
Ef ekki er lengur tilgangur fyrir tilvist félagsins má slíta því með einföldum meirihluta og ákveður fundurinn ráðstöfun eigna sem félagið kann að eiga. Boða skal þá sérstaklega til fundarins vegna tillagna um niðurlagningu félagsins.

18. gr.
Þinglýsing samþykkta
Stjórn félagsins skal hlutast til um það að samþykktum þessum verði þinglýst sem athugasemdum á allar fasteignir og lóðasamninga og lóðir sem tilheyra félagssvæðinu svo og breytingum sem kunna að verða gerðar á samþykktum þessum.





19. gr.
Breytingar á samþykktum þessum
Breytingar á samþykktum þessum verða aðeins gerðar á aðalfundi. Tillaga um breytingu verður einungis tekin til afgreiðslu að hún hafi verið kynnt í aðalfundarboði og hljóti samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða og minnst helmingur félagsmanna sæki fundinn.

Ákvæði til bráðabirgða
Á stofnfundi félagsins skal kjósa formann til tveggja ára. Kjósa skal helming stjórnarmanna til eins árs og helming til tveggja ára. Kjósa skal einn varamann til tveggja ára og einn til eins árs.

Back to content